Það er gaman að fá sér nýja yfirhöfn á haustin og alltaf tilefni til þar sem öll veður eru í boði hér á haustin. Það er mikið úrval í búðunum af fallegum kápum, bæði stuttum og síðum og einnig úlpum, léttum og hlýrri. En maður þarf ekki alltaf að dúða sig í úlpu, stundum er gott að skella yfir sig ponsjói og það er nóg yfir jakka eða peysu í bílinn, þegar maður leggur nálægt vinnustað eða hvar sem maður er. Ponsjó eru líka góð að grípa í á ferðalögum. Við kíktum í búðir.