Gaman er að eiga fíkur sem eru töff, fara aðeins úr penheitunum og rokka smá.
Það á vel við á veturna, fara í grófar peysur, jafnvel kúrekastígvél sem nú eru í tísku, eða támjóa skó við víðar buxur, já, támjóir skór og víðar buxur eru inni núna. Það er líka smart að blanda saman fínlegu og grófu. Bregða út af vananum, prófa eitthvað nýtt og hafa gaman.