Líf vinkonu minnar gjörbreyttist eftir að hún missti dóttur sína en missirinn var upphafið að löngu og dimmu tímabili. Hún missti heilsuna, heimilið fljótlega eftir það og vinunum fækkaði jafnt og þétt. Árum saman bjó hún í pínulítilli og dimmri kjallaraíbúð og flestir bjuggust við að svona yrði bara líf hennar eftirleiðis.