Hönnun þessa skemmtilega baðherbergis var í höndum Írisar og Freyju hjá IDEE hönnunarstudio. Þær lýsa hönnuninni sem tímalausri og fremur mínimalískri. Rýmið er níu fermetrar og segja þær Íris og Freyja það hafa verið áskorun að endurskipuleggja rýmið til að koma frístandandi baðkari fyrir þannig að það fengi að njóta sín. Áður var rýmið blátt og skrautlegt en eigendurnir vildu fara í allt aðra og klassískari átt og er útkoman í takti við þær óskir.