Ástkær vinahjón mín hafa ekki alltaf átt sjö dagana sæla. Óheppni, svik og fjárhagsáhyggjur og síðast sár missir varð til þess að þau fluttu upp í sveit til að reyna að ná andanum fjarri öllu áreiti. Þá tók ekki mikið betra við, meiri ákveðni hefði dugað til að laga hlutina en þau voru bara of brotin til þess.