Meðalholt í Austurbæ Reykjavíkur er einstaklega krúttleg einstefnugata sem einkennist af grónum görðum og rólegheitum. Nýlega heimsóttum við fallegt heimili í Meðalholti þar sem Birta Fönn Sveinsdóttir og Sigmar Bjarni Sigurðsson búa ásamt hundinum Rio. Þar gætir óneitanlegra danskra áhrifa og ákveðinn léttleiki er í aðalhlutverki.