Hjónin Auður Mikaelsdóttir framreiðslumeistari og Andrés Bragason matreiðslumeistari eru fólkið á bak við veitingastaðinn Á Bístró í Elliðaárdalnum sem opnaði í október á síðasta ári. Staðurinn dregur nafn sitt af ánni og endurspeglar nærumhverfið hugmyndafræði staðarins. Náttúran og útivistarsvæðið rennur í eitt og er Á Bístró afslappaður áfangastaður í dalnum. Auður og Andrés eiga einnig veitingastaðinn Otto á Höfn í Hornafirði og má sjá innblástur að austan á nýja staðnum.