Þetta segja þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir sem reka fyrirtækið AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf. Guðrún er menntuð í félagsfræði frá Háskóla Íslands og mannauðsstjórnun (e. Human Resource Management) frá University of Westminster. Hildur nam sálfræði og mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands. Báðar eru þær markþjálfar og hafa lokið ýmsum námskeiðum sem viðkoma mannauðsstjórnun.