Sýningarferðalagi (e. roadshow) kvikmyndarinnar Þrot lýkur þriðjudaginn 26. júlí á Seyðisfirði. Þrot er sakamáladrama sem segir frá dularfullu morðmáli sem skekur smábæjarsamfélag og þeim áhrifum sem það hefur á líf og fortíð þriggja ólíkra einstaklinga. Heimir Bjarnason leikstýrir og leikarar eru Bára Lind Þórarinsdóttir, Anna Hafþórsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Pálmi Gestsson, Tómas Howser og Guðrún S. Gísladóttir. Upplýsingar: tix.is.