Þessu lýkur hér (e. This Ends With Us) er 14 bók Collen Hoover og sú fyrsta sem kemur út á íslensku. Hoover gaf sína fyrstu bók út 2012 og hefur verið ötul síðan því alls hefur hún gefið út 24 bækur. Hoover hefur sagt að Þessu lýkur hér sé „erfiðasta bókin sem ég hef skrifað“ og án þess að hafa lesið aðrar bækur hennar trúi ég þeim orðum hennar.