Logi Marr og Rebekka Ellen Daðadóttir hafa komið sér vel fyrir
á efstu hæð í bjartri íbúð í gamla Vesturbænum. Hvert rými
hefur sinn stíl, svefnherbergið er notalegt undir japönskum
áhrifum, eldhúsið minnir á franskan vínbar og stofan er ljós og
skandinavísk með formfögrum stólum frá áttunda áratugnum.
Lýsing, litir og karakter einkenna þessa sætu íbúð sem
Rebekka og Logi hafa gert að sinni.