Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
dflip
post
dflip

„Það er auðvelt að finna fyrir reiði í garð margra“

Á vindasömum en sólríkum degi í byrjun júní tekur samfélagsmiðlastjarnan og leikskólakennarinn Fanney Dóra Veigarsdóttir á móti blaðamanni á heimili systur sinnar á Álftanesinu. Útsýnið út um stofugluggan er draumi líkast og á næsta horni leika lömb sér í haga og gera sér líklega enga grein fyrir því að höfuðborg heimalandsins sé aðeins steinsnar í burtu. Fanney situr í förðunarstólnum því fram undan er forsíðutaka. Yfir henni er þessi rómaði óléttuljómi sem margar konur dreymir um en ekki allar fá að upplifa. Hún ætlar sér að deila sögu dóttur sinnar, Thaliu Guðrúnar, sem var greind með heilaæxli tæpum þremur mánuðum fyrir þriggja ára afmælið sitt. Fanney Dóra segir með sanni að þetta sé ekki sorgarsaga, enda var æxlið fjarlægt í aðgerð sem gekk vel og allar fréttir sem fjölskyldan hefur fengið síðan hafa verið jákvæðar. Henni finnst þó mikilvægt að sagan sé sögð til að aðrir geti lært af þrautagöngunni sem hún og unnusti hennar fundu sig á og einkenndist lengi af baráttu við lokaðar dyr og því að gert væri lítið úr áhyggjum þeirra.  

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.