Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
dflip
post
dflip

Sveitasæla á Siglufirði

Það lét ekki mikið yfir sér, húsið sem stóð á staurum úti á túni þegar framtakssömu hjónin, María Ketilsdóttir og Ágúst Hilmarsson, voru að koma úr gönguferð frá Siglunesi með gönguhópnum Stóruhvíld og litu það fyrst augum. Þá kviknaði sú hugmynd að kaupa húsið og var það gert árið 2014. Húsið var byggt á Siglufirði árið 1930, á steyptum kjallara. Síðan var það flutt úr bænum yfir í fjörðinn árið 2009 og sett niður á Saurbæjarás. Lítið vissu þau hjón um sögu hússins í upphafi en öfluðu sér upplýsinga um það. Húsið hafði verið draumsýn í kvikmynd og voru atriði í myndinni Fálkar eftir Friðrik Þór Friðriksson tekin upp í húsinu þegar það stóð á Siglufirði. Sumarbústaðurinn í heild sinni er eitt af fallegu sköpunarverkum þeirra hjóna sem fjölskyldan hefur notið góðs af og búið til dýrmætar minningar í gegnum árin.

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.