Í reisulegu húsi við Þingholtsstræti hafa verið gerðar umtalsverðar umhverfisvottaðar endurbætur á húsi sem byggt var árið 1912. Húsið er það fyrsta hér á landi til að hljóta slíka vottun fyrir endurbætur en þau Finnur og Þórdís ruddu brautina þegar þau byggðu fyrsta umhverfisvottaða einbýlishúsið í Urriðaholtinu árið 2017. Við fengum að heyra söguna sem þetta virðulega hús hefur að geyma.