Margir velja að bjóða upp á matarmiklar súpur í veislum sem er þrælsniðugt enda einfalt að búa þær til og það má gera með ágætum fyrirvara. Gott brauð með súpunni setur svo punktinn yfir i-ið. Þetta brauð er einstaklega einfalt en sérlega bragðgott. Það má sleppa eða skipta ólífum, tómötum eða osti út fyrir kryddjurtir, aðrar gerðir af osti eða í raun það sem hverjum og einum þykir best.