Í Kjós í Hvalfirðinum er fjöldi fallegra sumarhúsa sem snúa í átt til sjávar en útsýnið er afar fallegt. Eitt sumarhúsanna er í eigu Hildu Allansdóttur sem við heimsóttum árið 2018. Hilda er hárgreiðslukona og blómaskreytir að mennt en ásamt því að starfa við hárgreiðslu hefur hún keppt í fitness og unnið til fjölda verðlauna.