Í nýstárlegu hverfi í Urriðaholti býr þriggja manna fjölskylda, María Rós, Sindri og Sól. María er menntaður stærðfræðikennari og er sem stendur í fæðingarorlofi. Sindri er eigandi Ketchup Creative, sem er framleiðslufyrirtæki og auglýsingastofa. Heimili þeirra er staðsett á efstu hæð í fallegri penthouse-íbúð með stórbrotnu útsýni yfir Heiðmörkina. Hverfið hefur jafnt og þétt verið að byggjast upp og var húsið þeirra fullbyggt í lok árs 2019. Heimilið var komið í jólabúning þegar okkur bar að garði, fallegar mínimalískar skreytingar í takt við stíl þeirra beggja.