Ilmur María Arnarsdóttir er 22 ára fagurkeri með einstakan stíl. Hún fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Natatorium sem kom út fyrr á árinu og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum en hennar fyrsta lag, Eitur, kom út í lok apríl. Hún er að eigin sögn með ansi mörg járn í eldinum um þessar mundir en myndi fyrst og fremst kalla sig leik- og söngkonu því það er það sem hú brennur mest fyrir. Ilmur er nýkomin heim frá Bretlandi þar sem hún fór í leiklistarfornám við Oxford School of Drama og stefnir á að fara til London að vinna í haust. Í sumar starfar hún sem flugfreyja hjá Icelandair en er líka að taka aukavaktir í Spúútnik, gera neglur og „DJa“ af og til.