Gísli Matt yfirmatreiðslumeistari Slippsins sendi nýverið frá sér sína fyrstu bók. Bókin heitir Slippurinn: recipes and stories og hefur fengið góð viðbrögð, bæði hér heima og erlendis. Gísli segir það lengi hafa verið draum hjá sér að gefa út bók og er himinlifandi með útkomuna þegar hann flettir í gegnum hana.