Í smekklegri og nýuppgerðri íbúð í Mávahlíð búa þau Elín Rósa Guðlaugsdóttir og Ari Viðarsson. Þau festu kaup á íbúðinni árið 2020 og réðust þá strax í miklar endurbætur. Elín segir íbúðina hafa verið dæmigerða fyrir byggingarstílinn sem einkennir gjarnan hús í Hlíðunum, hún var hólfuð niður og fremur dimm. Það kom því ekkert annað til greina en að ráðast í töluverðar breytingar. Í framkvæmdaferlinu reyndu þau að gera sem mest sjálf og allt eftir eigin höfði. Þau eru himinlifandi með útkomuna enda fer vel um þau á þessu fallega heimili sem endurspeglar algjörlega þeirra stíl.