Grace Achieng er upprunnin í Kenía og fluttist til Íslands árið 2010. Áður en hún hóf samskipti við Íslending á netinu vissi hún ekki einu sinni að Ísland væri til en nú er hún hingað komin og tekin til við að auðga mannlífið hér svo um munar. Hún stofnaði hönnunarmerkið Gracelandic í þeim tilgangi að hjálpa konum að skapa sér sjálfbæran fataskáp.