nnanhússhönnuðurinn Baptiste Bohu hannaði þessa fallegu villu í Sikiley þar sem guli liturinn er allsráðandi. Sjálfur er hönnuðurinn hrifinn af Art Deco og samtímahönnun og sækir innblástur meðal annars til heimila í Bali og Morrokó. Það er eitthvað upplífgandi við gula veggina og guli liturinn fer einstaklega vel við grænan gróðurinn og bláu smáatriðin.