Anna Gunnhildur Ólafsdóttir er sérfræðingur á jafnréttis- og mannréttindaskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og meistaranemi í ritlist við Háskóla Íslands. Áður lagði hún stund á blaðamennsku, var teymisstjóri á skrifstofu borgarstjóra, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og sérfræðingur á sviði sveitarstjórnarmála í innviðaráðuneytinu. Hún er mikill bókaormur, stundar golf, líkamsrækt, sund og sjósund þegar færi gefst.
Anna Gunnhildur kynntist eiginmanni sínum Davor Purusic lögmanni þegar hann fékk hæli á Íslandi vegna stríðsátakanna á Balkanskaga árið 1993. Davor er fæddur og alinn upp í Sarajevó, höfuðborg Bosníu og Hersegóvínu. Þau Davor eiga tvær dætur, einn tengdason og tvö barnabörn.
Þau hjónin hafa ferðast talsvert um fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu eða allt frá því Davor fluttist til landsins. Oftast hafa þau farið til Sarajevó, sem er uppáhaldsborg þeirra beggja. Þá hefur hún gert sér far um að kynna sér sögu og menningu fyrrverandi lýðvelda Júgóslavíu, en eftir hana liggur til dæmis ungmennabókin Niko um upplifun bosnísks drengs af stríðsátökunum á Balkanskaga á árunum 1992 til 1996.