Ekki fer fram hjá neinum að höfuðborg okkar Íslendinga hefur tekið miklum breytingum undanfarna áratugi. Borgin er gróðursælli en áður, hjóla- og göngustígar eru mjög víða og uppbygging mikil, ekki síst í úthverfum borgarinnar sem minna á gömlu góðu hverfin með kaupmanninn á horninu og þjónustukjörnum. Þetta eru þættir sem eru okkur sýnilegir en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur horft á borgina með heilsugleraugum. Öll uppbygging miðast við að heilsa borgarbúa sé í fyrirrúmi. Borgarstjórinn sem er líka læknir brennur fyrir þessu og segir það að sjá breytingarnar á borginni gefi sér næringu í starfi.