Flíkur úr rúskinni hafa ekki verið að taka mikið pláss síðustu árin en nú er tími þessa klassíska efnis runninn upp á ný ef marka má tískuspekúlantana. Flíkur sem minna mann á tíma þegar rokk og ról var ráðandi afl í tískuheiminum verða það allra flottasta í vetur. Við fórum á stúfana og kynntum okkur hvar finna má þetta svala trend í verslunum.