Förðunarfræðingurinn Agnes Björgvinsdóttir hefur lagt mikla áherslu á að framkalla notalega stemningu í svefnherbergi sínu. Herbergið er tiltölulega stórt, eða 23 fermetrar, þannig að henni hefur tekist að útbúa þar sjónvarpshorn þar sem þægilegur og fallegur tungusófi leikur stórt hlutverk.