Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistarmaður og sambýlis maðurinn hennar Finnur Hákonarson hljóðmaður búa ásamt börnum sínum á æskuslóðum Finns á Kársnesinu. Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt árið 1963 af fjölskyldu Finns. Hér hafa þau búið síðastliðin sex ár og kunna afar vel við sig í þessu gróna og fjölskylduvæna hverfi.