Að koma öllum saman í jólaboð milli jóla- og nýárs getur verið heljarinnar fyrirhöfn og þegar búið er að setja saman fjölskyldur og mæta þörfum og löngunum hvers og eins getur jólaboðavertíðin einfaldlega verið mörgum svo til um megn. Þá er um að gera að létta aðeins á mesta álaginu og athuga hvort það sé ekki frekar stemmning fyrir notalegu kaffiboði á aðventunni. Hér fylgja að minnsta kosti nokkrar uppskriftir sem smellpassa fyrir slík boð….