Fjöllistamanninum Sindra Frey Bjarnasyni, oft kallaður Sparkle, er margt til lista lagt en hann málar málverk, skrifar ljóð, fæst við ljósmyndun, heldur uppistand, býður upp á BDSM-kennslu í gæsunum og kemur fram sem dragdrottning svo nokkur dæmi séu tekin. Sindri hefur líka gaman af eldamennsku og bakstri en vöfflur eru það sem hann bakar oftast. Í þetta sinn skellti Sindri þó í marenstertu sem slær alltaf í gegn að hans sögn.