Sumarið 2021 lögðum við leið okkar í Skorradalinn og hittum á Sigurbjörgu Gyðu Guðmundsdóttur og skoðuðum notalegan bústað hennar sem hún og maðurinn hennar, Ómar Örn Helgason, höfðu þá nýverið festu kaup á. Undanfarna mánuði hafði Sigurbjörg þá varið öllum frítíma sínum í að dytta að bústaðnum og útkoman er afar flott þar sem gamlir munir í nýjum búningi eru í forgrunni.