Skartgripahönnuðurinn Lilja Björk Guðmundsdóttir hefur spáð í tísku frá því að hún var barn og hefur henni alltaf fundist vera gaman að vera fín og klæða sig upp. Hún segir eigin stíl einkennast af litagleði en ekki of áberandi samt. Hún elskar að nota liti og poppa þá smá upp hvort sem það tengist flík, nöglum, tösku, trefli, skóm eða húfu.