Hefur þú einhvern tímann rekist á manneskju sem er klædd eins og hún hafi vaknað og ákveðið að fara í öll sín uppáhaldsföt í einu? Eða eru sum svona djörf að það er erfitt að henda reiður á hver sé í raun stíllinn sem viðkomandi klæðist? Hér gætum við verið að sjá fatahönnun sem hefur verið kölluð „maximalist.“ Hönnunina er hægt að finna innan hátískunnar en eins er hægt að sjá fólk klæða sig í þennan stíl hversdags. Stíllinn er allt sem mínímalísk tíska er ekki; hún er björt, djörf og yfirlýsingaglöð.