Myndlistarkonan Rakel McMahon skellti í eplamulningsböku eða crumble fyrir okkur. Hún segir eldamennsku eiga betur við sig heldur en bakstur og því sækir hún ávallt í fremur einfaldar uppskriftir þegar kemur að bakstri. Hún segir mulningsbökur vera í uppáhaldi vegna þess að þar er hægt að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn og leika af fingrum fram.