Fagurkerinn Helga Vala Jensen, kölluð Vala, bauð okkur nýverið í heimsókn á smekklegt heimili sitt í Hafnarfirði þar sem hún býr með eiginmanni sínum og tveimur sonum þeirra og sagði okkur frá þeim endurbótum sem þau hafa ráðist í undanfarin ár. Hún hefur brennandi áhuga á heimili og hönnun og fékk mikla útrás við að standa í framkvæmdum.