Los Angeles, borg engla, drauma og Barbie er sólríkur staður með hrífandi andrúmslofti. Þar eru avókadóbrauðin vinsæl ásamt street-taco en þar poppa líka upp fjölmargar spennandi nýjungar í matargerð. Fólk hvaðanæva að úr heiminum kemur til LA í leit að ævintýrum og samfélagi sem næst oft í gegnum mat. Ef þú leitar að sólarströnd, menningu, skemmtun og mannlífi þá ætti Los Angeles að vera á ferðalistanum þínum.