Haustið er uppáhalds árstíð margra sem elska að hafa það notalegt í ullarsokkum og hlýrri peysu. Nú er líka tíminn til að dúða okkar minnsta fólk í fallegar flíkur beint af prjónunum. Ljúflingar – Uppáhaldsföt á yngstu börnin er norsk prjónabók sem heitir á frummálinu Klompelompe – nye favoritter til baby og er nýjasta bók Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland, höfundanna að hinum vinsælu Klompelompe-bókum.