Litlir hamborgarar eru alltaf vinsælir í boðum og hægt er að hafa ýmsar fyllingar á milli. Hægt er að panta litla hamborgara hjá hinum ýmsu veisluþjónustum landsins en af hverju ekki að spreyta sig á þeim sjálfur, það er auðveldara en margir halda og þeir eiga svo sannarlega eftir að slá í gegn.