Þórunn Káradóttir, lögfræðingur hjá fjártæknifyrirtækinu YAY, er fædd og uppalin í Hafnarfirði en á ættir að rekja til Kópaskers. Þórunn og kærasti hennar Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður fluttu fljótlega eftir að frumburðurinn, Ída, kom í heiminn í janúar á síðasta ári. Nýbygging á efstu hæð við Hlíðarenda varð fyrir valinu og var það birtan, staðsetningin og náttúran allt um kring sem heillaði. Þórunn og Hrafnkell hafa gert íbúðina að sinni með því að mála alla veggi heimilisins í fallega tónaðri litapallettu sem gefur íbúðinni ferskan andvara.