Vínfræðingurinn og vínþjónninn Alba E. H. Hough tók nýverið við sem forseti Vínþjónasamtakanna. Hún hefur mikla reynslu í faginu og hefur keppt á fjölda móta fyrir hönd Íslands víða um heim. Alba segir starfið sitt vera „geggjað“ en segir fagið sveipað leyndardómi og hún vill breyta því.