Söngkonan Glowie skaust fram á sjónarsviðið þegar hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014. Segja má að líf hennar hafi breyst á einni nóttu við sigurinn og þótt það hafi verið ánægjulegt að fá alls konar tækifæri í tónlistinni í framhaldi segir Glowie að það hafi líka verið mjög yfirþyrmandi. Hún vinnur nú að plötu með eigin lögum og textum, sem hún stefnir á að gefa út í sumar. Glowie segir hér frá söngferlinum, ADHD-inu sem greindist seint og hafði mikil áhrif á skólagönguna, kynferðislegri misnotkun sem hún varð fyrir snemma á árinu 2014 og manninum sínum, Gulla, sem hafi sýnt henni hvernig raunveruleg hamingja sé.