Orðið var hátíðlegt um að litast á heimili þeirra Fjólu Hreindísar Gunnarsdóttur og Hjörleifs Pálssonar í Mosfellsbæ þegar við heimsóttum þau fyrir skemmstu. Smekklega skreytt jólatré, kertaljós og uppdekkað borð skreytt grenigreinum skapaði hlýlega jólastemningu. Fjóla er mikill fagurkeri eins og sjá má á heimilinu sem er stílhreint og notalegt.