Lesandi vikunnar að þessu sinni er Gísli Ásgeirsson. Hann er 69 ára eftirlaunamaður sem býr þar sem Sædýrasafnið var á sínum tíma, rétt hjá apabúrinu. Hann hefur áhuga á útivist, tungumálum og hreyfingu í flestum myndum. Er fæddur og uppalinn í afskekktri sveit og segir það hafa mótað sig meira en góðu hófi gegnir.