Kryddin frá Mabrúka eru ný og spennandi vara fyrir sælkera en það er Safa Jemai sem er konan á bak við fyrirtækið. Safa er frá Túnis en hefur búið hér á landi í þrjú ár, hún starfar sem forritari en hefur undanfarið unnið að því að setja fyrirtækið Mabrúka á laggirnar í samvinnu við fjölskyldu sína í Túnis. Kryddin frá Mabrúka eru handgerð þar í landi en það er móðir Söfu sem sér um alla framleiðslu og notast við hráefni í hæsta gæðaflokki.