Við vinkonurnar erum ekki allar sammála um hvenær sólarhringsins er best að stunda kynlíf. Umræðan kom upp í hópnum um daginn þegar ein sagðist vera illa sofin af því að maðurinn hennar hefði vakið hana snemma á laugardagsmorgni og reynt að koma henni til. Hún var ekkert sérlega hress með þetta brölt eiginmannsins, vildi heldur sofa.