Þessa kryddblöndu er þægilegt að eiga tiltæka í kryddhillunni. Hún er líka mjög góð á kjúkling og annað kjöt. Til þess að gera einfaldan kryddlög er tilvalið að blanda 1 msk. af kryddblöndunni saman við 1-2 msk. af worchestershire-sósu og 2-3 msk. af olíu.