Þegar hausta tekur og kuldinn fer að bíta í kinnarnar þá er fátt betra en að ylja sér með heitum drykkjum og sætum bitum. Graskerskrydd hefur ekki tíðkast hér á landi en er afar vinsælt í Bandaríkjunum á þessum tíma árs. Hví ekki að prófa eitthvað nýtt og hlýlegt krydd á þessum tíma árs?