Í listrænni íbúð á 25. hæð í 19. hverfi Parísar búa hjónin Laufey Helgadóttir, listfræðingur og leiðsögukona, og Bernard Ropa arkitekt. Eftir að þau fluttu inn árið 2011 hafa þau gjörbreytt íbúðinni og voru þau með sterka áherslu frá upphafi á að list mætti njóta sín á hverjum fleti heimilisins. Síðan þá hafa þau haldið sýningar á íslenskri list einu sinni til tvisvar sinnum á ári.