Við fengum að kíkja í heimsókn á vinnustofu AGUSTAV þar sem hjónin Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson taka á móti okkur. Saman stofnuðu þau AGUSTAV, íslenskt húsgagnahönnunar og framleiðslu fyrirtæki þar sem hvert eintak er handunnið með endingargildi að leiðarljósi. Ágústa og Gústav leggja áherslu á heildstætt hönnunar og framleiðsluferli þar sem form og notagildi kallast á en ástríða þeirra fyrir vönduðu handverki er það sem drífur þau áfram.