Það er ekkert leyndarmál að íslenski veturinn er oft óvæginn og erfiður, sérstaklega fyrir geð þjóðarinnar sem vart hefur séð til sólar svo mánuðum skiptir. Því finna eflaust mörg okkar fyrir ákveðnum létti þegar sú gula fer að láta sjá sig á vorin, dagana tekur að lengja og gróðurinn kemur grænn undan vetri. Sumarið kemur svo í allri sinni dýrð með tilheyrandi sólardögum, sumarfríi og grillveislum.