Hryllingssagan eða gotneskar sögur einkennast af hrollvekjandi eða yfirnáttúrulegum atburðum. Þegar þær eru vel skrifaðar hríslast kuldahrollur niður bakið á lesandanum og hann lítur varfærinn í kringum sig í hvert sinn sem hann þarf að ganga um á dimmum göngum í marga daga á eftir. Nokkrar klassískar slíkar eru Fall of the House of Usher eftir Edgar Allan Poe, Drakúla eftir Bram Stoker, The Turn of the Screw eftir Henry James og Frankenstein eftir Mary Shelley.